Psalms 149

1Halelúja. Syngið Drottni nýjan söng, lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúaðra. 2Ísrael gleðjist yfir skapara sínum, synir Síonar fagni yfir konungi sínum. 3Þeir skulu lofa nafn hans með gleðidansi, leika fyrir honum á bumbur og gígjur. 4Því að Drottinn hefir þóknun á lýð sínum, hann skrýðir hrjáða með sigri. 5Hinir trúuðu skulu gleðjast með sæmd, syngja fagnandi í hvílum sínum 6með lofgjörð Guðs á tungu og tvíeggjað sverð í höndum 7til þess að framkvæma hefnd á þjóðunum, hirtingu á lýðunum, 8til þess að binda konunga þeirra með fjötrum, þjóðhöfðingja þeirra með járnhlekkjum, 9til þess að fullnægja á þeim skráðum dómi. Það er til vegsemdar öllum dýrkendum hans. Halelúja.
Copyright information for Icelandic